Sérstæðan
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
mið 11. nóv 2026 19:00
SÉRSTÆÐAN
Dansverk um framtíð án líkama
“Líkaminn minn fór að freyða. Minningar láku út um húðina. Skynjunin þyrlaðist upp og blandaðist landslaginu. Ég gufaði upp, eins og reykur sem rís upp úr iðrum jarðar.
Og nú er ég hér”
Sérstæðan er þverfaglegt dansverk þar sem kóreógrafía, ljóð, tónlist og sviðsmynd renna saman í eitt. Í óræðri framtíð syngur Vera um tilvist sína eftir að hafa yfirgefið líkamann og hlaðið sér upp á alnetið. Hún lifir nú einungis í gegnum hugsanir sínar og minningar um heiminn sem var. Hvernig er tilvera án líkama, holds og snertingar? Hvernig verður heimurinn ef við getum ekki lengur skynjað hann og upplifað hluti á borð við sársauka og nautn? Sérstæðan er dansverk án líkama, þar sem tónlist, vatn, ljós og reykur dansa.
Verkið sprettur úr hugmyndinni um sérstæðuna (e. singularity) – tilgátu innan tæknivísinda um tímapunkt í framtíðinni þegar tæknivöxtur verður orðinn óviðráðanlegur og leiðir til óafturkræfra breytinga á manneskjunni. Verkið veltir upp spurningum um framtíð líkamans. Munum við að endingu skilja endanlega við hann og eftirláta tækninni tilvist okkar? Munum við hætta að sjá og skynja hvort annað? Sérstæðan er óður til líkamans og skynfæranna og vangaveltur um hvað verður eftir ef þau hverfa.
Rósa Ómarsdóttir er danshöfundur sem vinnur þvert á miðla. Verk hennar flétta saman kóreógrafíu, lifandi hljóðmynd og myndlist með femínískri nálgun á dramatúrgíu. Í verkum sínum kannar Rósa möguleika ómannlegs efnis sem lifandi hluta og leitast eftir að virkja skynjun áhorfenda á sem fjölbreyttastan máta.
Rósa hefur sýnt víða um Evrópu og verið í listrænu samstarfi við ýmsar virtar stofnanir. Verk hennar hafa hlotið fjölda Grímutilnefninga og verið verðlaunuð fyrir kóreógrafíu, sviðsmynd og hljóðmynd.
www.rosaomarsdottir.com
Í sýningunni eru blikkandi ljós, hávær tónlist á köflum og skaðlaus leikhúsreykur.
Höfundur, listrænn stjórnandi & danshöfundur: Rósa Ómarsdóttir
Tónskáld: Sveinbjörn Thorarensen
Flytjandi & söngvari: Inga Huld Hákonardóttir
Sviðsmyndahönnun: Rósa Ómarsdóttir, Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katarina Blahutova & Owen Hindley
Ljósahönnun: Katerina Blahutova
Tæknistjórar: Owen Hindley & Valdimar Jóhannsson
Búningahöfundur: Karen Briem
Dramatúrg: Anna María Tómasdóttir
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir, MurMur Productions
Listrænir ráðgjafar: Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir & Katrín Gunnarsdóttir
Textaráðgjafar: Halla Þórðardóttir, Björn Halldórsson, Vala Ómarsdóttir & Anna María Tómasdóttir
Starfsnemi: Anna Schou & Vivi Kyriakidou
Sérstakar þakkir: Slökkvilið Reykjavíkur
Styrkt af Sviðslistasjóði og Launasjóði listamanna.
Í sýningunni eru blikkandi ljós, hávær tónlist á köflum og skaðlaus leikhúsreykur.