Silva & Steini - Jól á Fantasíu
Vinnustofa Kjarval | Fantasíusalur, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Kort
fim 17. des 2026 20:00
Silva & Steini - Jól á Fantasíu
Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague hafa verið að syngja saman uppáhalds jólalögin sín svo árum skiptir, og jólin 2024 gáfu þau einmitt út plötuna Christmas With Silva & Steini, sem inniheldur nákvæmlega það sem titillinn segir. Sum lögin á prógramminu eru þekkt, önnur bara alls ekki, en öll eru þau falleg og skemmtileg, og gaman að flytja þau. Hljómsveitin verður stórfengleg, og mikið lagt upp úr nánd, innileika og samhljóma röddum.
„Þau gera þetta fáránlega, fáránlega vel. White Christmas, sem maður ætti að vera kominn með eitt mesta ógeð allra tíma á, er algerlega frábært.“
- Árni Matthíasson um plötuna Christmas With Silva & Steini
Flytjendur verða:
Silva Þórðardóttir: söngur
Steingrímur Teague: söngur og píanó
Andri Ólafsson: bassi
Eiríkur Orri Ólafsson: málmblástur
Magnús Trygvason Eliassen: trommur