Skapandi skrif - fyrstu skrefin
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Kort
mán 15. feb 2027 19:30
Hagnýtt, lifandi og skemmtilegt námskeið þar sem fjallað er um helstu áskoranirnar sem fólk stendur frammi fyrir þegar lagt er í að búa til skapandi texta.
Langar þig að finna frelsið sem felst í því að skapa texta sem er fullkomið hugarfóstur þitt? Texta þar sem hugmyndir flæða og þenja út veruleikann sem þú hélst að þú lifðir í eða mála hann nýjum og spennandi litum. Texta sem verður til þegar þú kemst yfir hjallinn sem áður hélt aftur af sköpunargleðinni?
Nemendur munu fá í hendur þekkingu og tól sem nýtast munu þeim við skapandi skrif í framtíðinni og auka þannig líkurnar á því að þeir komist á leiðarenda í eigin skrifum. Námskeiðið er að miklu leyti kennt í smiðjuformi, sem þýðir að nemendur munu spreyta sig á fjölbreyttum textaæfingum sem tengjast umfjöllunarefni hvers tíma. Þannig hvetjum við hvert annað til dáða og öðlumst praktíska reynslu af því að vinna með hluti eins og mismunandi frásagnaraðferðir, ólík stílbrögð og uppbyggingu texta.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á skapandi skrifum. Þeim sem velt hafa því fyrir sér að setjast við skriftir en ekki talið sig hafa verkfærin til að hefjast handa, þeim sem eru vön annars konar skrifum og vilja breiða út faðminn í átt að meiri sköpun og líka hinum sem hafa reynt sig aðeins við skapandi skrif en langar að taka þau á næsta stig.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hvernig eigi að bera sig að við fyrstu skrefin í skapandi skrifum, rúlla boltanum af stað.
- Uppbyggingu skáldverka, framvindu og spennu.
- Ólíkar frásagnaraðferðir og stílbrögð.
- Persónusköpun og mismunandi hlutverk persóna í bókmenntum.
Ávinningur þinn:
- Að þekkja og æfa leiðir til að hefja ferlið við skapandi skrif.
- Að þróa hæfileikann til að koma frá sér skapandi texta.
- Að þekkja mismunandi leiðir til að koma skapandi texta til skila.
- Að finna ávinninginn af því að deila eigin hugmyndum og skyggnast inn í hugarheim annarra.
Aðrar upplýsingar
Best er að vera með fartölvu til að vinna á í tímum.