Skapandi sumarstörf x VAKA þjóðlistahátíð: Púkablístran
Molinn Ungmennahús, Hábraut 2, 200 Kópavogur Kort
mán 14. sep 2026 18:00
Púkablístran er tónlistar- og útvarpsleikritsverk eftir Stefán Nordal, listamann í Skapandi sumarstörfum Kópavogs, unnið í samstarfi við Vöku þjóðlistarhátíð.
Verkið endursegir sögur af Sæmundi Fróða og Kölska í nýjum búningi þar sem frásögn, leikur, tónlist og hljóðheimur fléttast saman í skemmtileg ævintýri fyrir alla aldurshópa. Innblásið af íslenskum þjóðsögum og klassískum barnaplötum gefur verkefnið þjóðsagnaarfinum nýtt líf fyrir nýja kynslóð.
📅 Kynning og atriði á uppskerudögum Skapandi sumarstarfa: 21.-24. júlí
📅 Útgáfa á Spotify í lok ágúst
📅 Frumflutningur á verkinu sem hluti af Vöku þjóðlistarhátíð: 14. september kl 18:00 í forsal Salarins í Kópavogi
Verkið er hluti af Skapandi sumarstörfum Kópavogs 2026 og unnið í samstarfi við Vöku þjóðlistarhátíð.