Skiptimarkaður | Límmiðar og klippimyndir
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun. 01.11.2026 13:00
Langar þig að býtta og eignast nýja límmiða eða klippimyndir til að skreyta dag- og skissubækur?
Þá ertu velkomin í Borgarbókasafnið Árbæ!
Þátttaka er ókeypis, engin skráning og það er nóg að bara mæta.
Til staðar verða borð og stólar til að sýna góssið og skoða - og kaffi fyrir þá sem vilja staldra við og spjalla.
Fullkomið fyrir þá sem elska ritföng og vilja gefa dag- og skissu bókum sínum nýtt líf.
Heiðrún sem er listakona og starfsmaður bókasafnsins verður á staðnum ef það eru einhverjar spurningar. Hún var í skiptinámi í Japan í eitt ár og fékk þá algjöra dellu fyrir ritföngum. Síðan þá hefur hún haldið utan um dagbækur og skreytt þær með límmiðum og klippimyndum.
Viðburðurinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/events/707312
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún G. Viktorsdóttir | Sérfræðingur
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is