Skyndihjálp 6 klst: Endurmenntun atvinnubílstjóra - Reykjavík
Rauði krossinn á Íslandi, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík Kort
lau 14. nóv 2026 10:00
Markmið námskeiðisins er að veita þátttakendum tækifæri til upprifjunar á helstu viðfangsefnum skyndihjálpar með áherslu á verklega færni og tilfellaæfingar. Sú þekking, leikni og hæfni mun síðan geta nýst þátttakendum í að: - Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðast við neyðartilfellum. - Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum. Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti. Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið nema læknisvottorð liggi fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt. Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á skyndihjalp@redcross.is.