Skynjunarsögustund

Skynjunarsögustund

Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

mið. 30.09.2026 16:00

Opnar skynjunarsögustundir fara fram seinasta miðvikudag mánaðar kl. 16 í barnadeild aðalsafns.

Eyrún Ósk leikari og rithöfundur og Gréta Björg munu lesa sögur fyrir börnin, þar sem þær leggja áherslu á skynjun með hljóðum, leikmunum og leikrænum tilburðum.

Sögustundirnar eru öllum opnar meðan húsrúm leyfir og henta best börnum á aldrinum 0-5 ára.

Verið velkomin í notalega sögustund.

Skynjunarsögustundir eru partur af verkefninu Töfraheimur ævintýranna sem er styrkt af Barnamenningarsjóði.