Smiðja fyrir fullorðna - Trommudans / Inuit Inngerneq
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
lau 7. nóv 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!Takið þátt í kynningu á Inngerneq, hefðbundnum trommusöng og dansi inúíta frá Grænlandi, með tónskáldinu og trommudansaranum Nuka Alice frá Grænlandi.
Lengd smiðju er 90 mínútur og er þátttaka ókeypis.
Skráning er ekki nauðsynleg en takmarkað pláss er í salnum, um að gera að mæta tímanlega.
Í þessari þátttökusmiðju kynnist þú sögu, merkingu og grundvallaratriðum Inngerneq og færð tækifæri til að kanna hvernig sungið er af ásetningi og með nærveru. Saman lærum við Timaannaq 1, hvatningarlag án orða þar sem tjáningin felst í takti, rödd, hreyfingu og ásetningi.
Smiðjan gefur þátttakendum einstakt tækifæri til að kynnast mikilvægum hluta af menningarhefð inúíta af eigin raun og skapa um leið rými fyrir tengsl og menningarsamskipti milli Grænlandi og Íslands.
Engin fyrri reynsla af dansi eða söng er nauðsynleg. Öll eru velkomin og taka þátt að því leiti sem þeim er mögulegt.
Upplýsingar um aðgengi er að finna á heimasíðu Norræna hússins en almennt er aðgengi í Elissu sal gott, sérstakt pláss er frátekið fyrir hjólastóla, lágur þröskuldur er inn í salinn.