Söguhringur kvenna - Felted soap workshop

Söguhringur kvenna - Felted soap workshop

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

sun 1. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Image design; Katleen Abbeel

Næstkomandi sunnudag mun Katleen kenna okkur hvernig á að þæfa sápu. Að þæfa sápu lætur sápustykkið ekki aðeins endast lengur heldur býr einnig til innbyggðan þvottapoka. Þegar sápan er búin má nota afganginn af ullinni sem eldhússkrúbb. Öll efni og áhöld eru innifalin.

Grófinni, Tryggvragata 15,kl.14:00, 6.hæð. Starfsfólk bókasafnsins hleypir þér upp á réttu hæðina.

Um Söguhring kvenna

Söguhringur kvenna/The Women's Story Circle er vettvangur fyrir konur þvert á samfélagið til að hittast og tengjast í gegnum samveru og listræna tjáningu. Jafnframt er boðið upp á hagnýta fræðslu um menninguna og samfélagið sem við búum í. Öllum konum er velkomið að taka þátt hvenær sem er.

Söguhringur kvenna er samvinnuverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og W.O.M.E.N., Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.