Steinalda á Árbæjarsafni
Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort
lau 19. sep 2026 15:00
Hljómsveitin Steinalda mun halda tónleika á Árbæjarsafni laugardaginn 19. september næstkomandi klukkan 15:00. Aðgangseyrir er 0 kr.
Hljómsveitin mun frumflytja nýtt efni tvö ný verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem heita
Hugleiðingar um mikilvægi áningarstaða
og
Hugleiðingar um sameiginlegann grundvöll
Verkin eru hvort fyrir sig tileinkað ákveðnum sjoppum sem báðar voru eitt sinn í grenndinni við Árbæjarsafn. Verkin eru því það fjórða og fimmta í röð slíkra hugleiðinga, en þær eru allar í fjórum köflum og fyrir sjö hljóðfæri.
Um er að ræða ákaflega listrænt ágenga tónlist sem er engu að síður þægileg og kósý.
Hljómsveitina skipa:
Andrés Þór Þorvarðarson slagverk, munnharpa, ukulele ofl.
Ásthildur Ákadóttir wurlitzer hljómborð, dótapíanó ofl.
Guðmundur Steinn Gunnarsson slagverk, munnharpa, mandólín ofl.
Óskar Magnússon gítar, blístrur, slagverk ofl.
Páll Ivan frá Eiðum slagverk, munnharpa, banjó ofl.
Steinunn Vala Pálsdóttir flautur, blístur ofl.
Þórunn Björnsdóttir blokkflautur, blístrur ofl.
Um fyrri verk Guðmundar Steins og hópsins: