Steinalda
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 20:00
Steinalda er hljómsveit sem leikur tónlist eftir Guðmund Stein Gunnarsson og gerði meðal annars garðinn frægann með lögunum um Landvættina fjóra árið 2021. Mengi hefur löngum verið heimavöllur Steinöldu og hyggst hún nú flytja þar verk sem hafa einungis verið flutt lengst upp í Árbæ en verða nú loksins frumflutt í hundrað og einum. Þau heita 'Hugleiðingar um sameiginlegann grundvöll' og 'Hugleiðingar um mikilvægi áningarstaða'. Þá er aldrei að vita nema við þetta bætist nýjir eða gamlir slagarar eða að tekið verði við óskalögum úr verkasafni sveitarinnar. Sveitin ætlar að fylgja Landvættunum fjórum eftir á næstunni með holskeflu af nýjum hljómplötum. Sveitina skipa ásamt Guðmundi Steini, Andrés Þór Þorvarðarson, Ásthildur Ákadóttir, Óskar Magnússon, Páll Ivan frá Eiðum, Steinunn Vala Pálsdóttir og Þórunn Björnsdóttir. Þau spila öll á alls konar.