Stolin athygli leitar eiganda síns! Fræðsluerindi á Klaustri í heilsuviku

Stolin athygli leitar eiganda síns! Fræðsluerindi á Klaustri í heilsuviku

mán 2. nóv 2026 17:00

Stolin athygli leitar eiganda síns!

Hver stjórnar athygli okkar í stafrænum heimi og hvernig getum við tekið meiri stjórn á eigin tækninotkun?

Í tilefni af Heilsuviku í Vestur-Skaftafellssýslu býður USVS í samstarfi við Netvís upp á áhugaverðan og fræðandi fyrirlestur þar sem fjallað verður um áhrif snjalltækja, samfélagsmiðla og stafrænnar tækni á daglegt líf okkar.

Í Heilsuviku USVS að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á forvarnir. Fyrirlesturinn er liður í þeirri áherslu og miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um eigin tækninotkun, áhrif stafræns umhverfis á líðan og hegðun og mikilvægi þess að tileinka sér heilbrigðar venjur.

Í fyrirlestrinum verður meðal annars fjallað um hvernig algóritmar, gervigreind og hönnun samfélagsmiðla hafa áhrif á athygli okkar og hvernig stafræn tækni getur mótað daglegt líf.

Markmiðið er að efla vitund fólks um eigin tækninotkun, hvetja til upplýstra ákvarðana og veita gagnleg verkfæri til að finna betra jafnvægi í sífellt tæknivæddara samfélagi.

Fyrirlesarar eru Skúli Bragi Geirdal og Haukur Brynjarsson frá Netvís.

📍 Mánudagur 2. nóvember - Félagsheimilið Kirkjuhvoll kl. 17:00

📍 Þriðjudagur 3. nóvember - Víkurskóli kl. 17:00

Aðgangur er opinn öllum!

Fyrirlesturinn tekur um eina klukkustund og að honum loknum gefst tími til spurninga og umræðna.

USVS hvetur íbúa á öllum aldri til að nýta þetta tækifæri til að fræðast um málefni sem snertir okkur öll. Með aukinni fræðslu og meðvitund getum við stuðlað að heilbrigðari tækninotkun og bættri vellíðan.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Flytjendur