Sunnudagssmiðja 1. nóvember

Sunnudagssmiðja 1. nóvember

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Kort

sun 1. nóv 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

MetamorPhonics og Listaháskóli Íslands bjóða þér að skrá þig á fyrstu Sunnudagssmiðju MetamorPhonics á starfsárinu 2026-2027. Sunnudagssmiðjurnar eru tilkomnar til þess að bjóða upp á aðgengi að leik og tónlistarsköpun fyrir fullorðna, þar sem öll hljóðfæri og öll getustig eru velkomin. Markmiðið er að spila, prófa og hafa gaman!

Sunnudagssmiðjurnar skulu ávalt vera öruggt og þægilegt vinnurými fyrir alla viðkomandi. Því munum við öll leggja okkur fram við að skapa þægilegt umhverfi, sem einkennist af virðingu, stuðningsríku og jákvæðu viðmóti í öllum samskiptum.

Æfingarýmið er vímuefnalaust svæði. Við skiljum persónuleg málefni og áskoranir eftir fyrir utan vinnurýmið, þar sem við munum vera fyllilega til staðar og einbeitt í samstarfi og við tónlistarsköpun.

Tekið er við þátttakendum svo lengi sem húsrúm leyfir. Við staðfestum að þú hafir fengið pláss við fyrsta tækifæri.

Sunnudagssmiðjur eru starfræktar af MetamorPhonics. Þeim er stýrt af aðstoðarstjórnendum Kordu Samfóníu og verkefnastjórum.