Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands verða með sýningar um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki dagana 6. október til 7. nóvember 2026. Á sýningunum eru ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna árið 1945 og stuðla að auknum skilningi á hörmungum kjarnorkuvopna og mikilvægi friðar og afvopnunar.
Frá árinu 1995 hefur sýningin verið haldin alls 73 sinnum í 61 borg í 22 löndum. Sýningin er nú í fyrsta sinn hér á Íslandi og verður haldin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Sýningin í Tjarnarsalnum opnar formlega þriðjudaginn 6. október klukkan 16:00.
Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar býður gesti velkomna.
Yahata Teruko heldur erindi um reynslu sína frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar áttu sér stað.
Forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir mun svo opna sýninguna formlega ásamt Kenju Shiga safnstjóra Hiroshima/Nagasaki safnsins.
Á sýningunni verða meðal annars sýndir munir og söguleg gögn tengd árásunum, ljósmyndir, frásagnir eftirlifenda og boðið upp á sýndarveruleikabúnað.
Sýningin í Tjarnarsalnum er öllum opin til 1. nóvember næstkomandi.
Sýning um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki
Ráðhús Reykjavíkur - Tjarnarsalur, Tjarnargata 11, 101 Reykjavík Kort
fim 22. okt 2026 08:00
Bústaðu viðburðinn!