Tæknilæsi og tölvufærni - Ísafjörður og fjarkennt

Tæknilæsi og tölvufærni - Ísafjörður og fjarkennt

þri 13. okt 2026 17:30

Skráning: https://www.frmst.is/nam/Taeknilaesi_og_tolvufaerni_-_Isafjordur_og_fjarkennt/

Námið er ætlað þeim sem vilja efla tæknilæsi sitt og tölvufærni og verða öruggari í notkun stafrænnar tækni, bæði í daglegu lífi og á vinnumarkaði. Tæknin þróast hratt og markmið námsins er að þátttakendur öðlist þekkingu, færni og sjálfstraust til að takast á við þær breytingar sem fylgja sífellt aukinni notkun stafrænna lausna.

Sérstök áhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust gagnvart tölvum og tækni. Þátttakendur kynnast grunnþáttum tölva og stafræns umhverfis og þjálfa hagnýta færni í notkun tölva, snjalltækja og ýmissa stafrænna lausna.

Þau sem ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi, en aðrir eru einnig velkomnir.

Markmið námsins eru að:

efla tæknilæsi og tölvufærni þátttakenda og búa þá undir tæknibreytingar í daglegu lífi og á vinnumarkaði,

auka skilning á grunnþáttum stafræns umhverfis og efla færni í stafrænu vinnuumhverfi samtímans,

styrkja færni og trú þátttakenda á eigin getu til að nýta upplýsingatækni og stafrænar lausnir í starfi,

styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði og auka möguleika þeirra á fjölbreyttari störfum.

Námsþættir:

Fjarvinna og fjarnám

Sjálfvirkni og gervigreind

Skýjalausnir

Stýrikerfi

Tæknifærni og tæknilæsi

Öryggisvitund