Tarotspilin til sjálfsræktar - námskeið fyrir byrjendur ✨

Tarotspilin til sjálfsræktar - námskeið fyrir byrjendur ✨

Í streymi, , Reykjavík Kort

mán 2. nóv 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Lagar þig að læra að spá í Tarotspil? Þá er þetta námskeið fyrir þig :)

https://natturulega.is/products/allt-um-tarotspilin-tarot-namskeid

“Allt um tarotspilin” eru vinsæl Tarotnámskeið, þar sem Tinna kennir hvernig má nýta sér tarotspilin til að leita svara við ýmsum málum er varða lífið og tilveruna.

Á þessu fjögurra vikna námskeiði lærir þú auðvelda aðferð til þess að túlka Tarotspilin og færð upplýsingar um allt sem þú þarft að vita til að lesa vel í Tarotspilin fyrir þig og þína. Þú færð upplýsingar og aðgang að efni sem hefur safnast saman á yfir 35 ára grúski og lestri spilanna.

Á þessu námskeiði lærir þú að nota Tarotspilin í daglegu lífi og hvernig er best að spyrja spilin spurninga til að rannsaka farveginn framundan og að styðja við betri sjálfsþekkingu.

Námskeiðið er fyrir byrjendur og einnig þá sem sem hafa einhverja kunnáttu af tarotspilunum en langar að læra betur á táknmyndir spilanna og fá góð ráð og endurgjöf.

Næsta Tarot grunnnámskeiðið hefst mánudaginn 2. nóvember 2026 á Zoom og stendur yfir í 4. vikur.

Námskeiðsdagarnir eru eftirfarandi:

~ miðvikudagur 2.nóvember fundur á Zoom kl: 19:30-21:00

~ miðvikudagur 9.nóvember fundur á Zoom kl: 19:30-21:00

~ miðvikudagur 16. nóvember fundur á Zoom kl: 19:30-21:00

~ miðvikudagur 23.nóvember fundur á Zoom kl: 19:30-21:00

Allt efnið er tekið upp og aðgengilegt í lokuðum hópi á Facebook í 3.mánuði eftir að námskeiðinu lýkur og því góður tími til þess að horfa aftur á fundina, rifja upp og að tileinka sér efni námskeiðsins.

Á þessu námskeiði:

~ Lærir þú að lesa spilin af innsæi og án þess að þurfa stöðugt að kíkja í bók.

~ Lærir auðvelda aðferð að túlka spilin.

~ Kynnist vel táknmyndum tarotspilanna.

~ Lærir um þroskasögu sálarinnar sem kemur fram í tarotspilunum.

~ Lærir að nýta þér Tarotspilin til persónulegs þroska og þróunar.

~ Færð upplýsingar um hvernig er best að spyrja spilin spurninga.

~ Færð upplýsingar um ýmsar góðar lagnir.

~ Lærir að gera Ársspá.

Námskeiðin eru mjög jarðbundin, vel skipulögð og gagnleg og það reynir á þátttakendur að vinna vel í sjálfum sér á meðan á námskeiðinu stendur. Þátttakendur eru hvattir til að styrkja sig til betra lífs og að rannsaka í gegnum spilin hvernig er hægt að ná meiri og betri árangri í lífinu - að upplifa meira.

Umsögn:

"Vá hvað ég er glöð að hafa látið verða af því að skrá mig á tarot námskeið hjá Tinnu! Mig hefur lengi langað til að læra meira á spilin og fá leiðsögn. Tinna er alveg ótrúlega frábær kennari, mjög lifandi og skemmtileg og hún útskýrir og fer yfir spilin á svo aðgengilegan og skýran hátt. Hún hefur grúskað lengi í tarotspilunum og það er alveg greinilegt, hún býr yfir miklum fróðleik og öryggi og það er frábært að hafa kennara sem lifir og hrærist í því sem hann kennir .

Ég er mun öruggari að æfa mig núna með spilin sjálf og hefði ekki getað trúað því hvað ég lærði mikið á þessu námskeiði. Ég kunni líka svo vel að meta að Tinna svaraði spurningum okkar fljótt og örugglega og hjálpaði okkur að lesa í eigin lagnir. Mæli hiklaust með þessu námskeiði. Takk kærlega fyrir mig."

Hér er hlekkur: https://natturulega.is/products/allt-um-tarotspilin-tarot-namskeid

Þetta námskeið fæst niðurgreitt hjá Stéttarfélögum.