Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey
Friðarsúlan, Viðey, 104 Reykjavík Kort
fös 9. okt 2026 17:30
Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.
Frítt er í Viðeyjarferjuna og fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skráning er nauðsynleg á viðburðinn, sjá hlekk!
Við hvetjum gesti til að taka þátt í hátíðlegri kvöldstund í Viðey þar sem Friðarsúlan verður tendruð í tuttugasta sinn. Boðið verður upp á leiðsagnir, listasmiðju, tónlistarflutning og hátíðardagskrá við Friðarsúluna.
Dagskrá
Leiðsagnir og listasmiðja
Upphafsstaður allra leiðsagna er við Viðeyjarstofu og listasmiðjan er í Nausti.
17:30
Listasmiðja á vegum Listasafns Reykjavíkur fram að tendruninni.
17:45
Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.
18:00
Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur
18:45
Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.
19:00
Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.
Dagskrá við Friðarsúluna
19:45
Árný Margrét flytur tónlist við Friðarsúluna
19:58
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flytur ávarp
20:00
Friðarsúlan tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono
Samgöngur
Siglingar frá Skarfabakka - Viðey
Kl. 17.30 – 19.30
Frítt er í ferjuna, en skráning í báta nauðsynleg hjá Eldingu
20:30–22:00
Strætó Ráðhús að Skarfabakka (30 mín fresti)
Kl. 17.30 – 19.00
Strætó frá Skarfabakka að Ráðhúsinu (á 30 mínútna fresti)
20:30–21:30
Viðeyjarstofa verður opin frá kl. 17:30–21:00, eða þar til síðasti gestur hefur yfirgefið eyjuna. Þar verður hægt að kaupa léttar veitingar.
Um Friðarsúluna:
Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur listarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.
Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kringum brunninn og er endurkastað upp með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti.