Það er búið að hakka bókasafnið!
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
sun 18. okt 2026 14:00
Ratleikur fyrir börn og fjölskyldur Það hefur óprúttinn hakkari komist í kerfi og prentara bókasafnsins og dreift röngum upplýsingum víðsvegar um safnið. Bókasafnið hefur fengið Tótu spæjara til þess að rannsaka málið sem kallar núna eftir ykkar hjálp. Með því að nota ráðin stoppa, hugsa og athuga er hún viss um að þið getið leyst málið, fundið röngu upplýsingarnar og komið bókasafninu til bjargar. Stoppa – hugsa – athuga eru leiðbeiningar frá Fjölmiðlanefnd um það hvernig hægt er að þekkja rangfærslur og falsfréttir. Sjá nánar: https://fjolmidlanefnd.is/stoppa-hugsa-athuga/ Þórunn Vignisdóttir (Tóta) stýrir ratleiknum en hún hefur starfað um árabil á almenningsbókasöfnum bæði í Reykjavík og Stokkhólmi. Hún hefur sérhæft sig í stafrænu læsi, miðlalæsi og skapandi notkun tækninnar með börnum og ungmennum. Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11. - 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum.
Þórunn Vignisdóttir (Tóta)
Nánari upplýsingar
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146