The Imagine Forum: From Cold War Lessons to Modern Challenges

The Imagine Forum: From Cold War Lessons to Modern Challenges

Harpa | Silfurberg, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort

mán 12. okt 2026 09:00

Bústaðu viðburðinn!

Árleg alþjóðleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs, The Imagine Forum, verður haldin í 10. sinn í Hörpu þann 12. október 2026 undir yfirskriftinni Frá lærdómi kalda stríðsins til áskorana nútímans, „From Cold War Lessons to Modern Challenges".
Ráðstefnan er sérstaklega tileinkuð 40 ára afmæli leiðtogafundarins. Gestgjafar eru Höfði friðarsetur í samstarfi við embætti forseta Íslands, utanríkisráðuneytið, Reykjavíkurborg og Sagnfræði- og heimspekideild HÍ. Á ráðstefnunni mun einvala lið sérfræðinga víða að úr heiminum ræða um mikilvægi samvinnu, trausts og friðaruppbyggingar á tímum vaxandi spennu og óvissu í varnar-, öryggis- og afvopnunarmálum. Ráðstefnan er öllum opinn en skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar.