Þjóðlagasamspil á Mossley Trad Session at VAKA Folk Arts Festival
Mossley, Borgarholtsbraut 19, 200 Kópavogur Kort
fim 17. sep 2026 20:00
Fiðlarar, kvæðamenn, dansarar, slagverksfólk og áhugamenn! Verið öll hjartanlega velkomin í þjóðlagasamspil á Mossley, Kópavogi, þar sem leikin og sungin verður þjóðlagatónlist frá Íslandi, Svíþjóð, Írlandi og Englandi, svo fátt eitt sé nefnd.
Reykjavík Trad Sessions er óformlegur hópur tónlistarfólks og -áhugamanna sem spilar reglulega saman og hittist ca annað hvert þriðjudagskvöld á Ægir 101, en í þetta sinn heimsækja þau Mossley í fyrsta sinn í tilefni af VÖKU þjóðlistahátíð 2026. Á þessum kvöldum má heyra þjóðlagatónlist hvaðanæva að og eru nýliðar sérstaklega velkomnir. Upplagt að taka félagana með.
Samkundan hefst klukkan 20:00 og nær fram að lokun. Mossley er hverfisveitingastaður, staðsettur að Borgarholtsbraut 19, beint á móti Sundlaug Kópavogs. Börger, vængir, tacos og bjór eru aðalsmerki staðarins, allt alvöru, gert af ástríðu. Í húsinu hefur verið sýslað með mat og drykk síðan 1952. Þar hefur verið mjólkurbúð, matvöruverslun, sjoppa og bakarí meðal annars.
Við mælum með því að gestir skelli sér í pottinn fyrir komuna;
https://www.facebook.com/events/1938100850906588
Til að fylgjast með Trad Sessions, skráðu þig í hópinn á Facebook: https://www.facebook.com/share/g/1bFj5yM7mk/
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Nánar um hátíðarviku:
https://www.facebook.com/events/2881917765475464