Þjóðlistamarkaður
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort
lau 19. sep 2026 11:00
Þjóðlistamarkaður Vöku 2026 - Ókeypis aðgangur
[ENGLISH BELOW]
Laugardaginn 19. september verður handverksmarkaður Vöku haldinn í fordyri Salarins í Kópavogi frá kl. 11:00–17:00.
Á markaðnum kemur saman fjölbreyttur hópur handverksfólks, listafólks og annarra sem tengjast handverki, þjóðlistum og menningararfi með einum eða öðrum hætti. Þar verður hægt að skoða og kaupa allt frá handgerðu skarti, víravirki og tréútskurði yfir í grafík, bækur, textíl og fleira.
Flestir söluaðilar verða með posa, en hjá sumum verður tekið við greiðslu með millifærslu.
Markaðurinn stendur frá kl. 11:00–17:00 laugardaginn 19. september í fordyri Salarins í Kópavogi.
Öll velkomin!
Söluaðilar verða:
- Heiðrún frá Steig
Verður með handgert skart unnið með orkeringu, gamalli handverksaðferð sem á sér langa hefð og hefur meðal annars verið notuð við gerð fíngerðra blúndna og skrautmuna.
- Bókin ehf. – fornbókaverslun
Verður með úrval eldri bóka, þar á meðal gamlar bækur tengdar rímum og kveðskap, auk annars efnis í svipuðum dúr.
- Nornabrunnur
Verður með bækur og póstkort, meðal annars bækur útgefnar af Hyldyr þar sem þjóðfræði, fræðimennska og listsköpun mætast. Þrjár bækur sem fjalla um íslenska galdra verða meðal þess sem finna má hjá þeim.
- Handverk Geirhildar
Verða með spjaldofna borða til sölu. Spjaldvefnaður er gömul vefnaðaraðferð sem þekkt hefur verið á Íslandi frá landnámsöld. Borðarnir eru ofnir úr náttúrulegum efnum á borð við hör, silki og ull og sumir úr jurtalituðu bandi.
- Kvæðamannafélagið Iðunn
Verður með ýmislegt úr útgáfusögu félagsins, meðal annars Segulbönd Iðunnar, nokkrar Iðunnar-vínilplötur og afmælisrit félagsins.
- Bjarni Þór Kristjánsson – tréútskurðarmaður
Verður með handskornar fígúrur, meðal annars íslenska fugla, fólk á þjóðbúningum og persónur úr íslenskri þjóðtrú og sagnahefð á borð við jólasveinana, Grýlu og Leppalúða.
- Linn Janssen Illustration
Verður með dúkristuprent og fleiri verk úr eigin smiðju.
- Milla víravirki
Sérhæfir sig í handsmíðuðu og steyptu víravirki ásamt annarri þjónustu sem tengist íslenska þjóðbúningnum. Á markaðnum verður meðal annars boðið upp á skartgripi þar sem hefðbundið víravirki og samtímaskartgripagerð mætast.
- Dans Afríka Iceland
Verða með fjölbreyttan afrískan varning, meðal annars töskur, fatnað og fleira.
- Gaza Company
Er félagslegt hönnunar- og handverksfyrirtæki sem tengir saman palestínska og íslenska menningu í textíl og útsaumi. Vörurnar eru handunnar af konum á Gaza og byggja á palestínskri útsaumshefð, en í hönnuninni mætast jafnframt íslensk mynstur, litir og menningarlegar vísanir.
- Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Verður með ýmislegt áhugarvert úr sinni verslun m.a lausavasa, gamla uppdrætti fyrir vefnað og útsaum, bækur og fleira.
- Línus Orri
Verður með plaköt eftir eigin hönnun þar sem sótt er í íslenska bragfræði og rímnakveðskap og þeim gefið nýtt myndrænt form.
- Marta Staworowska
Verður með skartgripi úr eigin smiðju.
- Milli tveggja heima (Laura A. Salinas)
Verður með verk þar sem kólumbísk Wayuu-mynstur og íslensk skrauttákn mætast. Með silkiþrykki, dúkristu og tréristu fléttar Laura saman þessar tvær handverkshefðir og sækir innblástur í menningu, minningar og tengslin milli Kolumbíu og Íslands.
// English //
Vaka Folk Arts Market 2026 - Free entrance
On Saturday, 19 September, Vaka’s Folk Arts Market will take place in the foyer of Salurinn in Kópavogur from 11:00 to 17:00.
The market brings together a diverse group of craftspeople, artists and others working with traditional crafts, folk arts and cultural heritage in different ways. Visitors will be able to browse and buy everything from handmade jewellery, filigree and woodcarving to prints, books, textiles and more.
Most vendors will accept card payments, while some will accept payment by bank transfer.
The market is open from 11:00 to 17:00 on Saturday, 19 September, in the foyer of Salurinn in Kópavogur.
Everyone is welcome!
Vendors will be :
- Heiðrún frá Steig
Will be selling handmade jewellery made using tatting, a traditional craft technique with a long history, used among other things to create delicate lace and decorative pieces.
- Bókin ehf. (Antiquarian Bookshop)
Will have a selection of older books for sale, including books related to rímur and poetry, as well as other material along similar lines.
- Nornabrunnur
Will be selling books and postcards, including books published by Hyldyr, where folklore, scholarship and artistic practice come together. Among the titles available will be three books exploring Icelandic magic and witchcraft.
- Handverk Geirhildar
Will have tablet-woven bands for sale. Tablet weaving is an ancient weaving technique known in Iceland since the Viking Age. The bands are woven from natural materials such as linen, silk and wool, with some made using naturally dyed yarn.
- Kvæðamannafélagið Iðunn (Iðunn Traditional Poetry Association)
Will have a selection of items from the association’s publishing history, including Segulbönd Iðunnar cassette recordings, several Iðunn vinyl records and the association’s anniversary publication.
- Bjarni Þór Kristjánsson (Woodcarver)
Will be selling hand-carved figures, including Icelandic birds, people in traditional Icelandic costume, and characters from Icelandic folklore and storytelling traditions, such as the Yule Lads, Grýla and Leppalúði.
- Linn Janssen Illustration
Will be selling linocut prints and other original works.
- Milla víravirki (filigree)
Specialises in handmade and cast filigree, as well as other work connected with traditional Icelandic costume. At the market, Milla will be selling jewellery that brings together traditional filigree techniques and contemporary jewellery design.
- Dans Afríka Iceland
Will have a variety of African goods for sale, including bags, clothing and more.
- Gaza Company
Is a social design and craft enterprise that brings Palestinian and Icelandic culture together through textiles and embroidery. Its products are handmade by women in Gaza and draw on Palestinian embroidery traditions, while also incorporating Icelandic patterns, colours and cultural references.
- Heimilisiðnaðarfélag Íslands (Icelandic Handicraft Association)
Will have a selection of interesting items from its shop, including traditional detachable pockets, old patterns for weaving and embroidery, books and more.
- Línus Orri
Will be selling posters of his own design, drawing inspiration from Icelandic poetics and rímur and giving these traditions a new visual form.
- Marta Staworowska
Will be selling jewellery of her own design and making.
- Between Two Worlds (Laura A. Salinas)
Will present works that bring together Colombian Wayuu patterns and Icelandic decorative motifs. Through screen printing, linocut and woodcut, Laura combines these two craft traditions, drawing inspiration from culture, memory and the connections between Colombia and Iceland.