Þórir Georg og Jónfrí á Dillon.

Þórir Georg og Jónfrí á Dillon.

sun 15. nóv 2026 21:00

Sunnudagskvöldið 15. nóvember ætla þeir Þórir Georg og Jónfrí að slá saman strengi sína og halda afslappaða og notalega tónleika á hinum rotgróna tónleikastað Dillon.

Tónleikarnir munu hefjast klukkan 21:00 og kostar 2000 krónur inn. Engum verður þó meinaður aðgangur vegna fjárskorts. Þannig að ef þið eruð blönk, komið bara samt.

Jónfrí

Meinlausi snekkjupopparinn Jónfrí treður upp með blöndu af indie, diskó og snekkjurokki. Jónfrí gaf út plötuna Djúpfalsað efni á dögunum, stemmningsverk sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Platan verður til sölu á tónleikunum.

Þetta verða einlægir og huggulegir haustónleikar. Jónfrí mætir með kassagítar, spilar lög og reynir að vera skemmtilegur.

https://open.spotify.com/artist/3llwG4tjaRkyHmsFXbKH8v?si=q-qIDHxHRWCmAfHKxQVbkQ

Þórir Georg

Tónlistarmaðurinn Þórir Georg hefur komið víða við á þeim rúmu 20 árum sem hann hefur verið að gefa út tónlist. Hann hefur spilað í hljómsveitum á borð við Gavin Portland, Ofvitarnir, ROHT, Óreiða og mörgum fleirum. Auk þess hefur hann gefið út tónlist sem einyrki undir eigin nafni og listamannsnafninu My Summer as a Salvation Soldier.

Nýlega gaf Þórir út plötuna Cheer Up á vegum Reykjavík Record Shop og mun hann spila lög af henni ásamt öðru efni úr sarpinum.

https://thorirgeorg.bandcamp.com/

Flytjendur