Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Austurlandi
Austurbrú, Búðareyri 1, Reyðarfirði, Búðareyri 1, Reyðarfjörður Kort
þri 3. nóv 2026 11:45
Bústaðu viðburðinn!Þriðjudaginn 3. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Austurbrú opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Austurlandi. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Austurbrúar við Búðareyri 1 á Reyðarfirði, kl. 11:45 og er opinn öllum.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Eining það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum.
Dagskrá
Staðan á Austurlandi: Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabæjar og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings
Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur: Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS
Mannvirkjaskrá: Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS
Skipulagsmál – helst á döfinni: Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS
Áætlun eignamarka jarða á Austurlandi: Friðrik Örn Bjarnason, sérfræðingur í fasteignaskráningu hjá HMS
Fundarstjóri verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.