Tilbúningur | Ferðaborðspil
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mið 4. nóv 2026 15:30
Bústaðu viðburðinn!Búum til borðspil sem hægt er að stinga í vasann!
Komdu í tilbúning og prófaðu að búa til borðspil í ferðastærð, eins og lúdó eða slönguspil... eða jafnvel taflborð! Við vinnum með málningarpenna og sjálfharðnandi leir, og kannski smá nál og tvinna.
Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“. Áhöld og efniviður verða á staðnum. Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Tilbúningur Borgarbókasafnsins fer fram í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, í Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, og í Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
✉ vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6244