Ull í fat, mjólk í mat

Ull í fat, mjólk í mat

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

sun. 30.08.2026 13:00

Ull í fat, mjólk í mat er yfirskrift sunnudagsins 30. ágúst en þann dag sinnir starfsfólk Árbæjarsafns ýmsum sveitastörfum upp á gamla mátann sem fróðlegt er að fylgjast með. Þennan dag er sérstök áhersla lögð á vinnslu mjólkur og ullar.

Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti mörg handtök á bænum 🐑🐄

Að vanda verður heitt á könnunni í Dillonshúsi og góðgæti með því.

Verið velkomin!

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

Flytjendur