Umsóknarsmiðja Tónlistarsjóðs
Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík Kort
mán 19. okt 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!Nú fer að styttast í að Tónlistarsjóður loki fyrir umsóknir vegna fyrri úthlutunar ársins 2027 (30. okt kl. 15.00!)
Að því tilefni býður Tónlistarmiðstöð umsækjendum að hittast í kaffi í sal miðstöðvarinnar mánudaginn 19. október kl. 15–18.
Þar gefst tækifæri til að vinna að umsóknum í góðum félagsskap, skiptast á hugmyndum og spjalla um umsóknarferlið. Viðburðurinn er hugsaður sem opið og hvetjandi vinnurými fyrir þau sem eru að undirbúa umsókn.
Skráning fer fram hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfv4-_7dBzc2pXWyKmS6JcaDIKhveWI-1oGVEqFqIWxsYqKAA/viewform