Uppselt 🥹 AÐ IÐKA LÍFIÐ // Sex mánaða djúpnám með Láru · janúar – júní 2027 // 3 laus pláss

Uppselt 🥹 AÐ IÐKA LÍFIÐ // Sex mánaða djúpnám með Láru · janúar – júní 2027 // 3 laus pláss

REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík Kort

lau 16. jan 2027 13:00

Bústaðu viðburðinn!

AÐ IÐKA LÍFIÐ

Sex mánaða djúpnám með Láru · janúar–júní 2027

Við hittumst í Reyr stúdíói eina helgi í mánuði, laugardag og sunnudag kl. 13.00–17.00. Fyrsta samveran verður þriðju helgina í janúar og síðan aðra helgi hvers mánaðar til júní.

Námið er opið öllum kynjum og verður í litlum, lokuðum hópi sem fær tíma til að kynnast, hlusta og kafa dýpra.

HJARTA NÁMSINS

Mig langar að skapa samveru þar sem við getum fundið helgileika lífsins.

Við könnum tengsl við okkur sjálf, hvert annað, náttúruna, landið og Guð — sköpunina og flæðið sem rennur um lífið. Þú mátt mæta með eigin trú, spurningar og óvissu.

Dulræna nálgunin fær að vera lifandi í náminu: draumferðir, myndmál, bænir, hljóð og seremóníur. Við gefum upplifuninni rými áður en við reynum að útskýra hana. Sumt verður að orðum, söng eða mynd. Annað má hvíla í skynjuninni og vera eitthvað sem við eigum innra með okkur.

LÍFIÐ SEM RITUAL — AÐ LIFA LJÓÐRÆNT

Við könnum hvernig iðkunin getur fléttast inn í hversdaginn. Að laga te, snerta tré, hlusta á regnið eða sitja með dagbók getur orðið að athöfn sem ber nærveru og merkingu.

Að lifa ljóðrænt er að taka eftir og vera í lifandi samtali við tilveruna. Að leyfa fegurð, gleði, sorg og leyndardómi að snerta okkur og finna eigin leið til að svara.

Sjálfsvirði, auðmýkt og hugrekki fylgja okkur í gegnum allt ferðalagið. Við æfum okkur í að treysta eigin skynjun og skoða hana af heiðarleika, láta rödd okkar heyrast, orða mörk, þiggja nærveru og gefa því óþekkta stað.

HELGI 1 · Líkaminn — líkamsvirði og hlustun

16.–17. janúar 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó

Við könnum tengslin við líkamann, sögurnar sem við berum um hann og innra samtalið.

Með mjúkri hreyfingu, sómatískum æfingum, snertingu að eigin vali og rödd hlustum við á ólíka líkamsparta. Hvernig vill líkaminn hreyfast? Hvernig hljómar hann? Hvaða orð, litir eða myndir koma þegar við gefum honum athygli?

Dagbókin verður leið til að tjá upplifun líkamans með skrifum, teikningu eða öðrum efniviði.

HELGI 2 · Sjálfsvirði og tengsl — að tilheyra og þiggja

13.–14. febrúar 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó

Við skoðum hvernig við mætum okkur sjálfum og hvernig það fléttast inn í tengsl okkar við aðrar manneskjur og lífið.

Við æfum hlustun, nærveru og að orða þarfir og mörk. Í litlum hópum könnum við hvernig það er að þiggja umhyggju og veita hana, með skýru samþykki og virðingu fyrir óskum og mörkum hvers og eins.

Bæn, þögn og skapandi vinna verða leiðir til að dýpka tengslin við eigið hjarta.

HELGI 3 · Röddin — hljóð, sannleikur og hjartasöngur

13.–14. mars 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó

Við kynnumst röddinni í líkamanum og leyfum henni að vera bæði leikur og iðkun.

Við vinnum með humm, frjálsa tónun, kall og svar, möntrur og spunasöng. Könnum kraft og mýkt, næmi og það sem reynist okkur framandi eða erfitt.

Öllum býðst að tjá það sem er satt í stundinni, á eigin forsendum.

HELGI 4 · Innri hlustun — innsæi, auðmýkt og sköpun

10.–11. apríl 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó

Við könnum innsæi í tengslum við reynslu, þekkingu, tilfinningar og gamlar skilyrðingar. Æfum okkur í að hlusta og spyrja af heiðarleika hvað eigi við í andartakinu.

Egó, hégómi og auðmýkt fá einnig stað í umræðunni, ásamt ábyrgðinni sem fylgir því að miðla eigin skynjun.

Úr þeirri hlustun könnum við tilgang og sköpun: Hvað hreyfir við mér? Hvað þráir að fá farveg? Hvað langar mig að prófa í þessu rými? Það getur orðið að ljóði, hreyfingu, söng eða lítilli athöfn.

HELGI 5 · Náttúran og landið — lotning og gagnkvæmni

8.–9. maí 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó og úti í náttúrunni

Laugardagurinn verður í Reyr og sunnudagurinn úti. Nánari staðsetning útisamverunnar verður kynnt þegar nær dregur.

Við gefum okkur tíma með landinu. Göngum í þögn, hlustum á hljóðin, finnum áferð, hreyfingu og veður og könnum hvernig náttúran hefur áhrif á okkur.

Við leyfum staðnum að opna nýja vinkla á það sem við berum með okkur. Könnum að tilheyra náttúrunni og finna almættið í fjölbreyttum birtingarmyndum hennar.

Sameiginleg sköpun verður hluti af ritualinu.

HELGI 6 · Helgt rými — ritual, bæn og seremónía

12.–13. júní 2027 · kl. 13.00–17.00 báða daga · Reyr stúdíó

Á síðustu helginni drögum við þræðina saman og könnum hvernig við undirbúum helgt rými og okkur sjálf fyrir athöfn.

Við vinnum með ásetning, bæn um vernd og blessun, auðmýkt í leiðslu og hjartasöng. Kakó og jurtir sem ég þekki af eigin iðkun fá stað í þeirri vinnu.

Öllum býðst að móta einfalt ritual eða bænaathöfn fyrir sig eða lítinn hóp. Sameiginleg seremónía, söngur námsins, slökun og tónheilun verða hluti af síðustu helginni.

HVERNIG VERÐA HELGARNAR?

Laugardagarnir verða meira helgaðir fræðslu, samtali, kynningu á aðferðum og undirbúningi.

Sunnudagarnir verða lifandi ritual þar sem við gefum okkur iðkuninni, með tíma fyrir þögn, sköpun og samþættingu. Hver helgi endar á slökun og tónheilun.

Við vinnum meðal annars með mjúkt jóga og kundalini, sómatíska iðkun, rödd, sögur, söng, möntrur, hugleiðslu, jóga nidra, leiddar draumferðir, bænir, dagbókarskrif og ljóðlist.

Enginn fyrri grunnur er nauðsynlegur. Þú þarft ekki að kunna að syngja, teikna, skrifa eða iðka jóga. Þú velur hvernig þú tekur þátt og hvað þú deilir. Hlustun og þögn eiga jafnan stað í hringnum og tjáning.

Námið getur einnig nýst jógakennurum sem vilja dýpka eigin iðkun og rækta nærveru, hlustun og skapandi flæði í kennslu.

DAGBÓKIN OG TÍMINN MILLI HELGA

Dagbókin mun kortleggja ferðalagið og verða þitt persónulega safn.

Við verðum með lokaðan WhatsApp-hóp þar sem ég deili efni og einföldum boðum til iðkunar milli helga. Þar má einnig spyrja, deila vangaveltum, myndum og því sem kviknar í hversdeginum.

ÞAÐAN SEM NÁMIÐ SPRETTUR

Ég byggi námið á eigin iðkun, menntun og tíu ára reynslu af því að leiða tíma, hringi og seremóníur í Andagift og Móum.

Innblástur frá Joseph Rael, Robbie Warren, Sandra Ingerman, Kamini Desai, Julia Cameron og Robin Wall Kimmerer fléttast inn í efnið. Hugmyndir Raels um hljóð, öndun og hreyfingu eiga sérstaklega vel heima í þessari vinnu. Ég nefni uppruna þeirrar kennslu sem ég miðla og gef jafnframt eigin sköpun og reynslu stað.

VERÐ OG ÞAÐ SEM ER INNIFALIÐ

Verð fyrir allt námið er 179.000 kr., með möguleika á sex greiðslum.

Innifalin eru allar sex helgarnar, vinnubók, dagbók, kakó, te og létt snarl, ásamt efni og samtali í lokuðum WhatsApp-hópi.

Tíu pláss eru í boði í þessari fyrstu keyrslu.

Ef þú finnur að þú vilt vera með, sendu mér línu til að fá nánari upplýsingar um skráningu. Þú mátt líka gjarnan segja mér hvað kallar á þig og hvort eitthvað sé sem þú vilt vita betur.

moar@moarstudio.is

Með hlýju og tilhlökkun,

Lára 🤍