Útgáfuhóf - Heiðríkja

Útgáfuhóf - Heiðríkja

Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort

mið 21. okt 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Í tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar Heiðríkju eftir Miriam Petru Ómarsdóttur Awad verður boðið til útgáfuhófs í Mengi, Óðinsgötu 2, 21. október kl. 19:30.

Heiðríkja er fyrsta ljóðabók höfundar en titill bókarinnar er vísun í heiðbláan íslenskan himinn og léttleikann sem fylgir því að verða ástfanginn.

Á útgáfuhófinu mun höfundur lesa upp úr bókinni auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar og hægt verður að kaupa bókina.

Viðburðurinn er styrktur af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og er haldinn í samvinnu við Ós Pressuna.

Verið hjartanlega velkomin!