Útgáfuhóf I Kát Ína kanína og leyndarmálið

Útgáfuhóf I Kát Ína kanína og leyndarmálið

Penninn Eymundsson (Kringlan suður), Kringlan, 103 Reykjavík Kort

sun 11. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Vegna útgáfu bókar minnar, Kát Ína kanína og leyndarmálið, blæs ég til hófs, þann 11. október n.k., kl. 14.00, í Pennanum Eymundsson í Kringlunni.

Mér væri það sannkallaður heiður og hamingja ef þú og þínir kæmuð og fögnuðu áfanganum með mér.

Léttar veitingar, upplestur og almenn gleði verður á boðstólnum.

Boðið er barnvænt og tilvalið fyrir Ínur, Stínur, Nínur, Línur og kanínur.

Á leið sinni í gegnum skóginn villist Ína og hún fær í fangið böggul sem hún lofar að segja engum frá ... en böggullinn verður sífellt þyngri.

Má einhvern tíma segja frá leyndarmálum?

Kát Ína kanína og leyndarmálið er ljúfsár saga sem opnar á umræðu um leyndarmál og minnir okkur á að ekki öll leyndarmál eiga að vera leyndarmál.

Hér er á ferðinni spennandi bók sem býr yfir fallegum boðskap sem á erindi við lesendur á öllum aldri. Sagan sýnir okkur á hjartnæman hátt hversu mikilvægt er að segja frá leyndarmálunum sem meiða.