Útgáfuhóf: Vakir þú? eftir Jón Kalman Stefánsson

Útgáfuhóf: Vakir þú? eftir Jón Kalman Stefánsson

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

þri 3. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið hjartanlega velkomin í útgáfuhóf Vakir þú?, sextándu skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar, eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar. Óhætt er að segja að hér sigli höfundur á önnur mið en áður, en undir er ævi frægustu persónu mannkynssögunnar 🧔🏻‍♀️

Við fögnum útkomu bókarinnar í Tjarnarbíói þriðjudaginn 3. nóvember kl. 17.00. Jón Kalman segir frá bókinni og les upp, í boði eru léttar veitingar og áritun á bækur. Öll velkomin! 🙌 ✨

Um bókina:

Nú breytist allt.

Barið er að dyrum um heita sumarnótt og atlot elskenda trufluð með skelfilegum tíðindum; bróðir konunnar hefur verið myrtur. Fregnin rekur hana og elskhuga hennar af stað í afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar, þar sem tekist er á um líf og dauða, ást og ofbeldi, og vilja mannsins andspænis guði.

Mörgum öldum síðar bíður maður í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur eftir pípulagningamanni til að skipta um klósett. Hann er ásóttur af minningum og hugsunum um kærleikann og syndina; nágrannar hans eiga erindi við hann, kirkjufeðurnir sækja að honum og í Airbnb-íbúðinni handan götunnar bíða Adam og Eva eftir svari Útlendingastofnunar við hælisumsókn þeirra. En margt getur gerst, dánir menn lifnað við, heitavatnsrör sprungið og eitthvað hræðilegt er í vændum.

Þetta er skáldsaga úr samtímanum en þó byggð á ævi frægustu persónu mannkynssögunnar, uppgjör við guð og menn, en líka það fegursta og versta í okkur sjálfum.