Vatn
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
mán 23. nóv 2026 10:00
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Vatn í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 6. nóvember kl. 16-18. Veitingar í boði.
Vatn nefnist sjöunda sýning félaga úr Fókus félagi áhugaljósmyndara sem mun taka yfir sýningarrýmið SKOTIÐ árið 2026. Sýningin er jafnframt lokasýning ársins á vegum Fókus.
Á Vísindavef Háskóla Íslands er að finna eftirfarandi skýringu á því hvað er vatn:
„Vatnið er í samfelldri hringrás: það gufar upp úr sjónum á suðlægari breiddargráðum, berst inn yfir landið þar sem það þéttist og fellur til jarðar, streymir aftur til sjávar í vatnsföllum eða berst niður í berggrunninn sem grunnvatn - og þaðan til sjávar aftur með tímanum.”
Á þessari sýningu sjáum við ljósmyndara fanga ýmiss konar birtingarmyndir vatnsins bæði í föstu og fljótandi formi. Þar sem það lemur ströndina, flæðir til hafs eða er í föstu formi og bíður geisla sólar til að leysa sig úr fjötrum.
Sýnendur eru:
● Arngrímur Blöndahl
● Brynja Jóhannsdóttir
● Finnur P Fróðason
● Jóhann Guðni Reynisson
● Jóhanna Ingimundardóttir
● Lárus St. Guðmundsson
● Sigríður Jóna Kjartansdóttir
Sýningar FÓKUS árið 2026 verða alls sjö með mismunandi þemu. Sýnendur verða 47 talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur.
Það er spennandi ár framundan – ekki missa af forvitnilegu og fjörugu ári í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur!📸
♿ Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu
Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).
Gjaldskyld bílastæði eru við safnið og í nærliggjandi bílastæðahúsum.