Vetrarferð/hillingar

Vetrarferð/hillingar

Grafíksalurinn/IPA Gallery, Hafnarhúsið, 101 Reykjavík Kort

fös 13. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Einkasýning - Soffía Sæmundsdóttir - Vetrarferð/hillingar 

Grafíksalurinn 31.10. - 15.11.2026

Hafnarhúsið, Tryggvagata 17 hafnarmegin

Opnun 31.10. klukkan 17-19

Opið fim-sun klukkan 14-17 


Laugardaginn 31. október milli klukkan 17 og 19 opnar Soffía Sæmundsdóttir sýninguna Vetrarferð / hillingar í Grafíksalnum sýningarsal félagsins Íslensk grafík Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 hafnarmegin. Þar sýnir hún verk á tréplötur striga og pappír unnar á undanförnum tveimur árum þar sem samspil þeirra miðla er dregið fram með áherslu á þrykkið.

“ Í grafíkverkum mínum leyfi ég oft tilviljun að ráða för. Það hvað skilar sér af tréplötunni á pappírinn getur verið erfitt að stjórna en ég legg upp úr því handgerða og ófullkomna. Ég lít á tréplöturnar sem sjálfstæð verk en nota pappírinn til að ná dýpt og taka af handstýringuna. Þessi verk sem ég sýni hér hef ég unnið ýmist úti í náttúrunni eða á afmörkuðum tíma á Korpúlfsstöðum, á Eyrarbakka og á grafíkverkstæði Edwards Munch í Ekely, Oslo.”

Soffía Sæmundsdóttir (f. 1965) hefur um árabil verið virk í íslensku listalífi og er þekkt fyrir málverk sín á tréplötur. Hún nam grafík við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk MFA-gráðu í málun frá Mills College í Oakland í Kaliforníu á árunum 2001–2003. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur dvalið sem gestalistamaður á ýmsum stöðum, þar á meðal hjá Leighton Studios í Banff Center í Kanada, og Kunstkvarteret í Stamsund í Noregi auk vinnustofudvalar á grafíkverkstæði Edwards Munch í Ekely, Oslo í nóvember 2025. Hún hefur tekið þátt í ótal samstarfsverkefnum og hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir verk sín. 

Soffía segir að þegar manneskja er máluð inn í landslag, öðlist það sögu og merkingu. Það vekur tilfinningar og tíminn verður mikilvægur. Á undanförnum árum hefur hún beint sjónum sínum meira að eigin sögu og tengslum við landslag og staði, með aukinni áherslu á skrif og upplifun af náttúrunni – hvort sem er ein eða í samstarfi við aðra. Verkin einkennast af málverkum, teikningum, grafíkverkum og prentum sem byggja á náttúrunni, en efnisnotkunin er fjölbreytt og markviss