VETRARHVEL // aðventunámskeið

VETRARHVEL // aðventunámskeið

REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavík Kort

sun 29. nóv 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

VETRARHVEL // Aðventunámskeið Móa

Hvíld · Hlustun · Myrkur · Ljós

Í náttúrunni er veturinn tími hvíldar og varðveislu. Trén standa ber, fræin hvíla í moldinni og undir frosinni jörð heldur lífið áfram, þótt lítið sjáist á yfirborðinu.

Í gamalli árstíðabundinni speki má finna djúpan skilning á mikilvægi þess að lifa í takt við hringrás náttúrunnar. Að hver árstíð hafi sinn tilgang og að myrkrið sé ekki síður mikilvægt en ljósið.

Í hefðbundinni kínverskri heimspeki tengist veturinn yin, vatninu, kyrrðinni og því að varðveita lífsorkuna. Í norrænum vetrarhefðum hafa ljós, eldur og samvera skipað mikilvægan sess á dimmasta tíma ársins.

Hvernig væri að iðka veturinn í stað þess að reyna að komast í gegnum hann?

Að hlusta þegar líkaminn kallar á hvíld.

Að gefa draumunum rými án þess að þurfa strax að færa þá í form.

Að varðveita lífsorkuna, næra innri eldinn og leyfa kyrrðinni að verða uppsprettu sköpunar.

Að muna að myrkrið er líka frjósamt.

Á fjórum sunnudögum yfir aðventuna komum við saman til að iðka í samhljómi við veturinn og náttúruna.

Við vinnum með líkamann, andardráttinn, röddina, kyrrðina og ímyndunaraflið. Við hlustum, syngjum, hvílumst, dreymum og sköpum rými fyrir það sem vill fá að lifa innra með okkur.

Fyrsta samvera (29. nóv) – Að ganga inn í veturinn

Við hægjum á, snúum athyglinni inn á við og skoðum hvað það merkir að lifa í takt við veturinn. Hverju erum við tilbúin að sleppa?

Önnur samvera (6. des) – Að varðveita orkuna okkar

Við skoðum samband okkar við eigin orku, mörk, sjálfsvirði og næringu. Hvernig getum við hlúð að innri eldinum án þess að ganga á okkur sjálf?

Þriðja samvera (13. des) – Frjósemi myrkursins

Við stígum inn í heim drauma, innsæis og sköpunar. Í myrkrinu fær hið ósýnilega að þroskast. Við iðkum traust, hlustun og það að leyfa hlutunum að verða til á sínum tíma.

Fjórða samvera (20. des) – Endurkoma ljóssins

Við heiðrum hringrás myrkurs og ljóss. Með söng, bæn og seremóníu fögnum við lífinu og því ljósi sem við berum innra með okkur.

Í samverunum fléttum við saman mjúkri líkamlegri iðkun, Yoga Nidra, hugleiðslu, möntrum, söng, draumferðum, ritun, kakói og seremóníum.

Þetta er boð um að stíga út úr hraðanum og inn í samband við veturinn.

Lára Rúnarsdóttir er tónlistarkona, jógakennari og stofnandi Móa. Hún hefur um árabil leitt fólk í gegnum jóga, hugleiðslu, söng, djúpslökun og seremóníur þar sem áhersla er lögð á nærveru, líkamsvitund og samband manneskjunnar við náttúruna.

Lára hefur stundað jóga og hugleiðslu í hátt á annan áratug og hefur fjölbreytta menntun og reynslu á sviði Kundalini jóga, Yoga Nidra, hugleiðslu og sómatískrar iðkunar. Hún hefur einnig lagt stund á shamanískar hefðir og vinnur með röddina, tónlistina og sköpunina sem leiðir til dýpri hlustunar og tengsla.

Í starfi sínu fléttar hún saman forna visku, skapandi iðkun og lifandi nærveru. Hún hefur sérstakan áhuga á því hvernig við getum ræktað samband okkar við náttúruna, eigin líkama og það heilaga í hversdagslífinu.

Í samverum Láru er boðið upp á rými þar sem fólk fær að mæta eins og það er, hlusta á eigin innri rödd og finna leiðir til að lifa í meiri tengslum við sjálft sig og lífið.

Dagsetningar: Sunnudagana 29. nóvember, 6., 13. og 20. desember 2026 frá kl. 16:30–18:00

Staðsetning: Reyr Studio, Fiskislóð 31, Reykjavík

Verð: 24.900 kr.

Tryggðu þér pláss á moarstudio.is eða í gegnum moar@moarstudio.is.

Verið hjartanlega velkomin ❤️