Viður­kenn­ing­ar­hátíð FKA

Viður­kenn­ing­ar­hátíð FKA

Hotel Reykjavik Grand, Sigtún 38, 105 Reykjavík Kort

mið 20. jan 2027 17:00

Bústaðu viðburðinn!

FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar.

Framlína íslensks viðskiptalífs og félagskonur FKA fagna með viðurkenningarhöfum og þeirra fólki á nærandi stundu.

HVAÐ: FKA Viðurkenningarhátíðin

HVENÆR: 20. janúar 2027.

HVAR: Hótel Reykjavík Grand og streymi á mbl.is

KLUKKAN: 17-19.

ATH! FKA Viðurkenningarhátíðin er opinn viðburður og gjaldfrjáls en mikilvægt að öll sem ætla að fagna með okkur í raunheimum merkið við „MÆTI“ hér á viðburðastiku.

Húsið opnar kl. 17.00 og athöfnin hefst stundvíslega kl. 17.15.

Fylgjumst með þegar veittar eru viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.

Á hátíðinni eru eftirfarandi viðurkenningar veittar:

- FKA Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið eða er konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.

- Hvatningarviðurkenning FKA er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar í atvinnurekstri.

- Þakkarviðurkenning FKA er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á valið!

Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd.

Hægt er að tilnefna konur í einum flokki eða öllum til og með 22. nóvember nk. Nánar á fka.is.