Viltu kaffi? Tölum íslensku saman / Let´s chat in Icelandic ☕
Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Ytri-Njarðvík Kort
lau 19. sep 2026 11:00
Langar þig að æfa þig í íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi? Þá er tungumálakaffið fyrir þig ☕️✨
Við bjóðum íbúa af erlendum uppruna velkomna í létt spjall og spil þar sem íslenskan fær að njóta sín. Engin krafa er um ákveðna kunnáttu, allir eru velkomnir, sama hvar þeir eru staddir í íslenskuþekkingu sinni.
Tungumálakaffið er haldið vikulega á þriðjudögum og laugardögum út desember.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og MSS.
Komdu, fáðu þér kaffi og taktu þátt í skemmtilegu spjalli ☕💬
Verkefnið er styrkt af Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu