Friðgeir Einarsson
Um flytjanda
Rithöfundurinn Friðgeir Einarsson velur verk úr Artóteki Borgarbókasafnsins, skrifar um þau texta og er hvorutveggja sett upp á sýningu. Sýningin opnar fimmtudaginn 31. mars og stendur til 30. apríl. SamSuða er yfirskrift sýningarraðar í Borgarbókasafninu Kringlunni. SamSuða er stefnumót skapandi einstaklinga þar sem skáld, velja verk úr Artóteki Borgarbókasafns og skrifa um þau stuttan texta. Verkin geta verið eftir einn og sama listamanninn eða blanda af verkum eftir ýmsa. Úr þessu verður hálfgerð SamSuða sem sett er upp á sýningu. Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn, sem allir eru félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistamanna. Markmiðið með Artótekinu er að kynna notendum Borgarbókasafns og öðrum íslenska samtímalist og gefa þeim kost á að leigja eða eignast listaverk á einfaldan hátt. Nánari upplýsingar veita: Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is s. 691 2946 Friðgeir Einarsson freinarsson@gmail.com s. 690 8609