Harmóníkuhátíð Reykjavíkur
Um flytjanda
Harmóníkuhátíð Reykjavíkur verður venju samkvæmt haldin í samstarfi við Árbæjarsafn sunnudaginn 17. júlí og stendur frá kl. 13-16. Á hátíðinni, sem haldin er í minningu stofnanda hennar Karls Jónatanssonar harmóníkufrumkvöðuls, koma fram margir af landsins bestu og þekktustu harmóníkuleikurum í fallegu umhverfi safnsins. Sem endranær munu félagar úr félagi harmóníkuunnenda á Suðurnesjum (FHUS) slá upp balli í Kornhlöðunni fyrir þá sem vilja dansa. Tónleikar verða í Lækjargötunni þar sem fólk getur sest niður og hlustað og stigið dansinn. Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum. /// Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir sléttir malarstígar en sums staðar eru hellulagðar stéttir. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar, leiðir 12 og 24, stoppa á Höfðabakka, rétt við safnið. Leið 16 stoppar við Streng (5 mín. gangur) og leið 5 við Rofabæ (6 mín. gangur).