Hreiðrið
Um flytjanda
Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í tilefni Hinsegin daga munu gestir Hreiðursins geta hlustað á 9 sögur þar sem hinsegin fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra. Í heimi þar sem fólk er sífellt meira sundrað gefur Hreiðrið tækifæri til að hlusta á einstaklinga með mismunandi lífsreynslu.