Hrólfur Sæmundsson
Um flytjanda
Hrólfur Sæmundsson hefur um árabil sungið stærstu hlutverk óperubókmenntanna við óperuhús víða um heim.
Hans helstu hlutverk þar hafa verið Macbeth, Wozzeck, Rigoletto, Germont (La Traviata), Don Carlo (La forza del destino), Don Carlo (Ernani) Miller (Luisa Miller), Rodrigo (Don Carlo), Ford Falstaff), Paolo (Simone Boccanegra), Escamillo (Carmen),Telramund (Lohengrin), Wolfram (Tannhäuser), Alberich, (Rheingold og Götterdämmerung) Kurwenal (Tristan und Isolde), Lord Ruthven (Der Vampyr), Michele (I’ll Tabarro), Sharpless (Madama Butterfly), Onegin (Eegene Onegin), Tomsky (Pique Dame) Figaro (Il barbiere di Siviglia), Don Pizarro (Fidelio), Ori í “Au Monde” eftir Philippe Boesmans,
Greifinn (Brúðkaup Fígarós), Don Giovanni og Don Alfonso (Cosi fan tutte), auk fjölda annarra.
Hann hefur einnig komið fram á Íslandi, við Íslensku Óperuna, í Þjóðleikhúsinu, og á fjölda tónleika um allt land.