Mc Myasnoi

Mc Myasnoi

experimental

Um flytjanda

MC MYASNOI er hljómsveit innan grasrótarhreyfingar í tónlistarsenunni í Reykjavík og meðlimur í Post-dreifing listasamfélaginu. ,,Við persónulega erum ekki MC Myasnoi, við veitum bara skilaboðum fyrirbærisins í gegnum okkur.“ Í þessu ljósi minnir MC Myasnoi helst á töfralækni eða spámann sem setinn er öndum og leiðir mannmergð í gegnum sameiginlega, hreinsandi upplifun segir

í grein um MC MYASNOI sem birtist í Stúdentablaðinu 10. desember 2021. MC Myasnoi persónugerir ómennskan eiginleika sem finnst samt í okkur öllum, segja tónlistarkonurnar. Skilaboðin sem hljómsveitin vill koma á framfæri í gegnum tónlist sína er að öll geta skapað og búið til list. Undirbúið ykkur fyrir sálrænan dauða og endurfæðingu.

Viðburðir framundan