Sigrún Þorgeirsdóttir
Um flytjanda
Sigrún Þorgeirsdóttir hefur í rúma tvo áratugi unnið ýmist sjálfstætt og innan fyrirtækja sem verkefna- og viðburðastjóri og stjórnandi. Hún hefur séð um skipulagningu fjölda ráðstefna og viðburða, komið að kennslu námskeiða, m.a. um þjónandi forystu, haldið fyrirlestra og eigin námskeið um þjónustu og um vellíðan í starfi og starfsmótun. Sigrún er með MS í stjórnun frá Háskóla Íslands.