Stjörnu-Sævar

Stjörnu-Sævar

Um flytjanda

Sara Riel og Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar bjóða börnum í geimferðalag um sýningu Söru Destination Mars þar sem geimflaugar, geimryk og vélmenni verða til umræðu. Allir áhugasamir um geimvísindi eru hjartanlega velkomnir og hlökkum við til að taka sérlega vel á móti forvitnum krökkum og leiða þau í myndrænni leiðsögn til plánetunnar Mars. — NÁNAR UM SÝNINGU Destination Mars er einkasýning Söru Riel í Ásmundarsal sem er sett upp sem geimferð til Mars. Listamaðurinn beitir fjölbreyttri tækni til að fjalla um grundvallarspurningar svo sem uppruna, tilgang, siðferði og örlög. Mikilfengleiki vísindaafreka mannsins kallast á við smæð hans í geimnum. Tæknihyggja og framfaratrú mætir dulspeki og fortíðarrómantík. Geimferðir sýna okkur jörðina í nýju ljósi en þekja hana smám saman geimrusli, svo hætt er við að við lokumst inni. Sýningin er í öllu húsinu og er myndræn geimferð frá jörðinni til Mars og aftur til baka. Sýningin samanstendur af málverkum, teikningum, grafík, ljósmyndum, lágmyndum, innsetningu og veggverkum. __ Sara Riel (f. 1980) nam höggmyndalist við Kunsthochschule Weissensee Berlin, og útskrifaðist með meistaragráðu og sem heiðursnemandi DAAD 2005 og meistaranemi (post-grad) árið 2006. Sara hefur frá námsárunum tekið virkan þátt í alþjóðlegu starfi götulistamanna í Evrópu og víðar. Hin fjölmörgu veggverk sem finna má á byggingum í Reykjavík þekkja flestir sem eru kunnugir í höfuðborginni, enda eru mörg verkanna orðin samofin borgarlandslaginu. Myndlist Söru einkennist af tilraunamennsku, leikgleði og tæknilegum metnaði. Sara hefur tileinkað sér fjölbreytta tækni sem hún notar til að útfæra verk sín. Öll eiga þau þó rætur í teikningunni enda lítur hún fyrst og fremst á sig sem teiknara. Samhliða veggjalistinni hefur Sara þróað sitt eigið myndræna tungumál og hefur sterkt höfundaeinkenni. Hún hefur sýnt verk sín í flestum höfuðsöfnum Íslands og tekið þátt í fjölmörgum sýningum hérlendis og erlendis og verið heiðruð af virtum menningarstofnunum. Verk eftir hana eru í eigu bæði stofnana og einkasafnara. Hún er meðlimur í Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur og SÍM. Sævar Helgi Bragason (f. 1984) er okkar fremsti vísindamiðlari og hefur starfað við vísindamiðlun hjá Háskóla Íslands, kennt stjarnvísindi í framhaldsskólum, í Háskóla unga fólksins, Háskólalestinni og Vísindasmiðjunni. Hann er tíður gestur í ýmsum fjölmiðlum þegar rætt er um vísindi og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir störf sín og miðlun. Árið 2014 hlaut hann viðurkenninguna Framúrskarandi ungur Íslendingur og árið 2016 hlaut hann viðurkenningu frá Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi vísindamiðlun. Sævar hafði einnig umsjón með einu stærsta vísindamiðlunarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi, þegar öllum nemendum og kennurum á Íslandi voru færð sérstök gleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum 20. mars 2015. Sævar hefur skrifað fjölmargar bækur um stjörnufræði og önnur vísindi tengd geimnum, eins og Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna, Geimverur – Leitin að lífi í geimnum og Svarthol – Hvað gerist ef ég dett ofan í? Við hlökkum til að taka á móti öllum áhugasömum þann 9.april kl15.00 - 16:00 og fræðast um geimvísindi í myndrænni geimferð Söru og Sævars. Góða ferð🚀 🚀 🚀 Barnaleiðsögn 9.apríl kl15.00 - 16.00

Viðburðir framundan

  • Vísindaskólinn | Geimþema með Stjörnu Sævari
    Vísindaskólinn | Geimþema með Stjörnu Sævari
    Náttúrufræðistofa Kópavogs
    mið 2. des 2026 16:30
    Skoða viðburð
  • La bohème
    La bohème
    Borgarleikhúsið | Litli Salur
    fös 4. des 2026 20:00
    Skoða viðburð
  • La bohème
    La bohème
    Borgarleikhúsið | Litli Salur
    lau 5. des 2026 20:00
    Skoða viðburð