Stockfish Film Festival

Stockfish Film Festival

Um flytjanda

Stockfish Film & Industry Festival er alþjóðleg kvikmynda- og bransahátíð í Reykjavík sem leiðir saman kvikmyndaunnendur og fagfólk með spennandi kvikmyndum, erlendum gestum og fjölbreyttri dagskrá. Hátíðin er sjálfstæð og rekin án hagnaðar.

Stockfish með pop-up hátíð í Bíó Paradís í tilefni Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Reykjavík, [23. september 2026]

Kvikmynda- og bransahátíðin Stockfish heldur sérstaka pop-up hátíð í Bíó Paradís dagana 15.–18. október í tilefni Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Á hátíðinni verða sýndar allar þær myndir sem eru tilnefndar til verðlaunanna auk fjölbreyttrar dagskrár sem tengir saman kvikmyndagerðarfólk, fagfólk úr bransanum og kvikmyndaáhugafólk.

Gestum gefst meðal annars kostur á að eiga kvöldstund með nokkrum aðstandendum myndanna, taka þátt í pallborðsumræðu um norræna kvikmyndagerð og sækja sérstakan tengslanetaviðburð.

Opið fyrir umsóknir í nýjum norrænum verðlaunaflokki

Stockfish hefur jafnframt opnað fyrir umsóknir fyrir íslenskar stuttmyndir og tónlistarmyndbönd á FilmFreeway fyrir komandi hátíð. Í fyrsta sinn er einnig hægt að sækja um í nýjum alþjóðlegum flokki Norræn frumraun, sem er ætlaður fyrstu kvikmynd norrænna höfunda.

Stockfish fer fram í þrettánda sinn, dagana 8.–18. apríl. Þetta verður þriðja hátíðin undir stjórn núverandi hátíðarstjóra og kjarnateymis, en í ár bætist nýr liðsmaður í hópinn, Tania Zarak Quintana, sem mun stýra bransadögum Stockfish. Tania hefur meðal annars starfað hjá True North, Netflix og Tribeca Film Festival.

Lúxemborg í brennidepli

Í ár verður Lúxemborg í brennidepli á Stockfish í tilefni nýs samframleiðslusamnings milli Íslands og Lúxemborgar. Markmiðið er meðal annars að bjóða fagfólki úr kvikmyndaiðnaðinum í Lúxemborg á hátíðina til tengslamyndunar og skapa ný tækifæri til samstarfs milli kvikmyndagerðarfólks í löndunum tveimur.

Nánari upplýsingar um dagskrá, umsóknir og hátíðina má finna á stockfishfestival.is.

Kvilkmynda- og bransahátíðin Stockfish | 8.–18. apríl

Viðburðir framundan