Rif
, 360 Rif
Um staðinn
Við Rif eru grunnar tjarnir og þar halda til fjölmargir strandfuglar. Einnig er eitthvert mesta kríuvarp landsins milli Hellissands og Rifs. Svæðið er því paradís í alfaraleið fyrir fuglaáhugamenn. Rif var fyrrum mesta fiskveiði– og verslunarhöfn á Snæfellsnesi. „Í Rifi drápu enskir ofbeldismenn Björn hirðstjóra Þorleifsson 1467 en Ólöf ekkja hans á Skarði hefndi hans greipilega. Enn sést steinninn þar sem Björn var veginn, Björnssteinn“.
Vefir: