Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyri

Norðurslóð 2, 600 Akureyri

Um staðinn

Háskólinn á Akureyri (HA) var stofnaður árið 1987 og fyrsti rektorinn, Haraldur Bessason var ráðinn um sumarið það ár. Fyrsta starfsárið var boðið upp á nám í tveimur deildum, heilbrigðisdeild og rekstrardeild. Kennslan fór fram í tveimur stofum í Íþróttahöllinni og tvær skrifstofur starfsmanna voru í Þingvallastræti 23. Fastráðnir starfsmenn voru fjórir og nemendur voru 31.

Frá upphafi hefur vöxtur HA verið hraður. Námsframboð hefur aukist jafnt og þétt, nemendum og starfsfólki hefur fjölgað, ýmsir samstarfsaðilar hafa komið til og byggingar hafa risið. Nú er boðið upp á grunnnám í eftirtöldum greinum: félagsvísindi, fjölmiðlafræði, hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun, kennarafræði (leik- og grunnskóla), líftækni, lögfræði, lögreglufræði, nútímafræði, sálfræði, sjávarútvegsfræði og viðskiptafræði. Þá er einnig boðið upp á framhaldsnám á heilbrigðisvísindasviði, í félagsvísindum, viðskiptafræði og auðlindafræði.

Viðburðir framundan

  • Nýnemadagar
    Nýnemadagar
    mán. 24.08.2026 09:00
    Skoða viðburð
  • Námstefna í Byrjendalæsi
    Námstefna í Byrjendalæsi
    fös. 11.09.2026 13:00
    Skoða viðburð
  • Læsi til náms og yndis | Læsisráðstefna MSHA og MMS
    Læsi til náms og yndis | Læsisráðstefna MSHA og MMS
    lau. 12.09.2026 09:30
    Skoða viðburð
  • Miðpunktur — Samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum
    Miðpunktur — Samstarfsvettvangur rannsókna í sjálfsvígsfræðum
    þri. 22.09.2026 09:00
    Skoða viðburð
  • Löggæsla og samfélagið — Afbrot ungmenna
    Löggæsla og samfélagið — Afbrot ungmenna
    mið. 30.09.2026 09:00
    Skoða viðburð