Austurvöllur
Kirkjustræti 14, 101 Reykjavík
Um staðinn
Austurvöllur hefur frá öndverðu verið tún Reykjavíkurbænda og áningastaður bænda í kaupstaðarferð. Árið 1874 gaf borgarstjórn Kaupmannahafnar Reykjavíkurbæ líkneski af Bertel Thorvaldsen og var í kjölfarið ákveðið að breyta Austurvelli í almenningsgarð og setja styttuna í hann miðjan. Árið 1919 var haldin samkeppni um útlit garðsins sem Sigríður Björnsdóttir sigraði. Árið 1931 var stytta Torvaldsen flutt í Hljómskálagarðinn og styttu af Jóni Sigurðssyni komið fyrir í staðinn. Austurvöllur er elsti almenningsgarður Reykjavíkur og hefur frá upphafi verið vinsæll og fjölsóttur samkomustaðir borgarbúa. Garðurinn fyllist af fólki á góðviðrisdögum og er í hugum margra hið eiginlega hjarta Miðbæjarins.