SKÝ Restaurant & Bar

SKÝ Restaurant & Bar

Ingólfsstræti 1, 101 Reykjavík

Um staðinn

SKÝ Restaurant & Bar er veitingastaður staðsettur í miðborg Reykjarvíkur, nánar tiltekið á 8. hæð og janframt efstu hæð á Center Hotels Arnarhvoll.

Á veitingastaðnum er að finna ljúffenga rétti, skemmtilega drykki og notalegt andrúmsloft.  Frá veitingastaðnum er einstakt útsýni bæði yfir miðborg Reykjavíkur og Faxaflóann þar sem fjallasýnin er stórbrotin.  Veitingastaðurinn er hannaður á nýtískulegan máta en um leið hlýlegan máta með stórum gluggum og aðgengi út á stóra verönd þar sem fyrir eru borð og stólar þannig að hægt er að njóta veitinganna úti við með óhindrað útsýni.

Við tökum fagnandi á móti hópum, allt að 80 manns og erum með sérsniðin hópmatseðil fyrir bæði smærri og stærri hópa.  Einnig bjóðum við upp á sér sýningarseðil sem skemmtilegt er að nýta áður en farið er á tónleika í Hörpu þar sem nálægðin við tónleikahúsið er mikil. 

Happy Hour er í boði alla daga frá 16:00 - 18:00 

Viðburðir framundan

  • Menningarnótt
    Menningarnótt
    lau. 22.08.2026 21:00
    Skoða viðburð
  • Kosmodod - Steve Sampling - Dj De La Rosa & Ísadóra - Ský Bar - Extreme Chill 2026
    Kosmodod - Steve Sampling - Dj De La Rosa & Ísadóra - Ský Bar - Extreme Chill 2026
    lau. 05.09.2026 14:00
    Skoða viðburð