Hólavallagarður

Ljósvallagata 1A, 101 Reykjavík

Um staðinn

Hólavallagarður er staðsettur í vesturhluta Reykjavíkur við Suðurgötu og er hann 3 ha að stærð. Garðurinn var vígður 1838 en árið 1932 var búið að úthluta öllum grafstæðum og er nú aðeins grafið í frátekin stæði. „Margir athyglisverðir legsteinar eru í garðinum og einnig sérútbúið legsteinatorg með sýnishornum af gömlum legsteinum. Minningarreitir um franska og færeyska sjómenn er einnig að finna í þessum gamla merka garði“. Af trjátegundum í garðinum ber mest á birki, ilmreyni og silfurreyni, einnig er þar talsvert af sitkagreni og Alaskaösp. Þar hefur verið boðið upp á gönguferðir með leiðsögumanni.

Vefir:

Viðburðir framundan

  • Gengið um garðinn í slóðir skáldsögunnar Garðurinn eftir Gerði Kristnýju
    Gengið um garðinn í slóðir skáldsögunnar Garðurinn eftir Gerði Kristnýju
    lau 10. okt 2026 11:00
    Skoða viðburð
  • Fuglaskoðun
    Fuglaskoðun
    lau 10. okt 2026 13:00
    Skoða viðburð