Yaima

Yaima

electronica

Um flytjanda

Vertu með okkur þann 8. ágúst þegar við stígum inn í „Lions Gate“ með The Yaima Music Project! Yaima kemur aftur til Íslands í ágúst og heldur aðra tónleika eftir góðar viðtökur í fyrra, að þessu sinni verða þeir haldnir á Sólsetrinu! „Folktronik“ tvíeykið Yaima, upprunið frá Seattle, samanstendur af fjölhæfa tónlistarmanninum Masaru Higasa og söngkonunni Pepper Proud. Tónlist Yaima er einstök og tímalaus og dansar á milli tjáningar hins karlæga og hins kvenlæga. Þau draga innblástur fyrir tónlistarsköpun sinni frá náttúrunni og er hún bæði endurnærandi, upplífgandi og róandi. Yaima óskar að örva tengsl milli hlustandans og náttúrunnar og býður tónleikagestum uppá fallega og djúpa upplifun. Húsið opnar kl. 18:30. DJ Brother Bodhi kl.18:30. Kakósermónía með BlessSing byrjar 19:30. Tónleikar með Yaima byrja 21:00. Midar í sölu á midiX.is, Mama Reykjavík og Holy Cow (Laugarvegi 2) Vertu með á ógleymanlegum tónleikum Yaima á Sólsetrinu Skrauthólum 4, Kjalarnesi, 162, þann 8. ágúst nk.

Viðburðir framundan