Ásthildur B. Snorradóttir
Um flytjanda
Ásthildur Bj. Snorradóttir er með sérkennarapróf, próf í talmeinafræði frá Noregi og meistaragráðu með áherslu á talmeinafræði frá Bandaríkjunum. Hún hefur skrifað margar greinar um snemmtæka íhlutun og undirbúning fyrir lestur. Ásthildur hefur áratuga reynslu af talþjálfun barna og ráðgjöf. Hún er höfundur fjölda kennslugagna í málörvun og vinsælla barnabóka um Bínu bálreiðu. Ásthildur er sjálfstætt starfandi talmeinafræðingur og var ein af eigendum Talþjálfunar Reykjavíkur, hún er hluti af íslenska TRAS hópnum og hefur starfað sem faglegur ráðgjafi m.a. hjá Menntamálastofnun.